Góður matur er ekki alltaf gífurlega flókið verkefni sem þarf að hugsa um í margar klukkustundir, stundum er nóg að nota fá hráefni og taka sér ca 15 mínútur í að elda sér frábæran kvöldverð. Það er það sem þessi réttur er, það sem tekur lengstan tíma við matseldina er að sjóða hrísgrjónin. Þetta er því frábær réttur til að grípa í þegar maður hefur lítinn tíma eða nennir einfaldlega ekki að elda
Hráefni
Kjúklingur 4 bringur (eða aðrir bitar sem þið kjósið frekar)
Teryaki 2 dl
Púðursykur 1 matskeið
Vatn 1/2 dl
Hvítlaukur 3 geirar
Chili 1/2 pipar
Engifer 1/2 cm bútur
Sesamfræ eftir smekk
Vorlaukur eftir smekk
Aðferð
Skerið kjúklingin smátt (ef þið eruð með bringur eða lundir)
Steikið á pönnu þar til kjúklingurinn er eldaður og setjið síðan til hliðar (ef þið eruð með leggi eða vængi eldið þá á plötu inní ofni)
Rífið engiferið og skerið hvítlaukinn og chiliið smátt og setjið á pönnu ásamt teryaki og vatni
Hitið að suðu og leyfið sósunni að þykkna í 2-5 mínútur
Bætið kjúklingnum útí ásamt sesamfræjum og veltið uppúr sósu og sesamfræjum
Takið af hitanum og bætið vorlauk saman við. Berið síðan fram með hrísgrjónum
Σχόλια