Þetta er réttur sem ég bjó eiginlega bara til óvart um daginn þegar ég vildi æfa mig í að úrbeina kjúklingalæri. Það er vissulega hægt að gera þessa uppskrift með keyptum úrbeinuðum kjúklingalærum en þá vantar skinnið ofaná sem mér finnst skipta máli. Fyrir þá sem ekki vita hvað pikklaðar paprikur eru þá eru þær oft kallaðar paprikusalat eða annað slíkt útí búð.
Hráefni
Kjúklingalæri 10 stk
Piparostarúlla 1 stk
Rjómaostur 5 msk
Brokkólí 1 meðalhaus
Blaðlaukur 1/2 laukur
Pikklaðar paprikur 100g
Ofaná rúllurnar
Smjör
Bezt á kjúklinginn krydd
Aðferð
Úrbeinið kjúklingalærin ef þið eruð ekki með úrbeinuð
Skerið framan af brokkólínu, skerið niður blaðlaukinn og blandið saman við paprikur, rjómaost og piparost
Dreifið þunnu lagi af fyllingunni á hvert kjúklingalæri og rúllið þeim síðan upp
Bræðið smjör og setjið kjúklingakrydd útí það og penslið lærin með því
Bakið lærin við 200°C í 35 mínútur, ef þið eruð með læri með skinni setjið þá á blástur síðustu 15 mínúturnar til að gera skinnið stökkt.

Comments