- Elísabet Jónsdóttir
Geggjað kínóasalat
Ég elska kínóa. Það er sagt vera hið fullkomna prótein með öllum amínósýrunum sem við þurfum, það er glúteinfrítt og hægt að leika sér endalaust með það. Mjög sniðugt fyrir kjötlausan mánudag :). Þetta salat finnst mér gott að grípa með í nesti og borða kalt en auðvitað er það gott einnig heitt eða sem meðlæti. Systir mín skellti því útí grænmetissúpuna sína daginn eftir og sagði það tæra snilld, gefur góða fyllingu.
Hráefni
1 tsk paprikukrydd
1 tsk túrmerik
1 tsk karrý
1/4 tsk chilli (eða ferskt)
1/4 tsk cumin
1 dl kínóa
1/2 paprika
1 gulrót
Brokkolí eftir smekk
1/2 laukur (má sleppa)
1 msk Sýrður hafrarjómi eða grísk jógúrt
Fetaostur eftir smekk
Aðferð
Skolið kínóað og sjóðið síðan eftir leiðbeiningum á pakkningunni með dass af salti
Skerið grænmetið smátt niður
Hitið pönnu á meðalhita með smá olíu og bætið kryddunum við þegar hún er orðin heit
Þegar kryddin byrja að ilma (tekur nokkrar mínútur) bætið lauknum við og steikið þar til hann verður glær
Bætið því næst brokkolíinu og gulrótinni á pönnuna og hrærið
Þegar grænmetið er byrjað að hitna í gegn setjið paprikuna á pönnuna með
Þegar allt grænmetið er orðið steikt hellið þið soðna kínóanu útá pönnuna og blandið öllu vel saman
Rétturinn er góður heitur og kaldur og því tilvalinn í nesti. Setjið fetaost og sýrðan rjóma eftir smekk með.
