Baldur Sverrisson
Hjónabandssæla í nútímabúning
Við vorum í Bandaríkjunum yfir Þakkagjörðarhátíðina að heimsækja vinafólk og ég var beðinn um að sjá um eftirrétt. Mér fannst það vera mikið ábyrgðarhlutverk þannig ég lá lengi yfir því hvað ég ætti að gera. Ég ákvað að gera nútíma útgáfu af hjónabandssælu og bera hana fram heita með ís. Einn gestur í matarboðinu hafði tekið með kirsuberjaköku því hann hafði áhyggjur af því að hann fengi ekki nógu góðan eftirrétt, hann fékk sér tvisvar af minni köku en bara eina af kirsuberjaköku. Það má því segja að hún hafi farið vel niður. Eplin gefa ekki frá sér neitt bragð heldur eru þau fyrir áferðina.
Hráefni
Spelt 260g (má nota venjulegt hveiti)
Haframjöl 200g
Smjör 200g
Púðursykur 200g
Matarsódi 2 tsk
Græn epli 1,5 stk
Kanill 1/8 tsk
Múskat 1/8 tsk
Negull 1/8 tsk
Salt 1 tsk
Jarðaberjasulta 1 krukka ca 100g
Rabbabarasulta 1 krukka ca 100g
Aðferð
Raspið eplin og notið hrærara til að blanda saman við allt nema sultuna þar til deig myndast
Þrýstið 3/4 af deiginu niður í form ca 30cm hringlaga. Látið deigið ná upp eftir hliðunum
Hellið sultunni ofan á deigið í forminu og setjið restina af deiginu ofaná sultuna með því munstri sem þið kjósið. Auðveldast er að mylja það yfir.
Setjið inní 180°C heitan ofn í 25 mínútur
Berið fram annaðhvort heitt með ís eða kælt fyrir kaffitímanum
