Það hefur væntanlega ekki farið framhjá mörgum að risa súkkulaðibitakökur í steypujárnspönnum eru í tísku einmitt núna. Það kom því ekki annað til greina en að ég myndi gera mína útgáfu. Ég hef nýlega eignast steypujárnspönnu og ég get einfaldlega ekki hætt að nota hana, svo góð er hún. Ef þið hinsvegar eigið ekki steypujárnspönnu væri hægt að gera einhverjar tilraunir með venjulegt bökunarform sem búið er að hita, endilega látið mig vita af slíkum tilraunum og hvernig þær heppnast
Hráefni
Smjör við stofuhita 250g
Púðursykur 2dl
Egg 1 tsk
Eggjarauður 2 stk
Lyftiduft 1 tsk
Matarsódi 1 tsk
Hveiti 5 dl
Haframjöl 1dl
Suðusúkkulaði 100g
Rjómasúkkulaði 150g
Dumle 1 poki
Aðferð
Þeytið saman smjör og sykur þar til blandan verður létt og ljós.
Bætið egginu og eggjarauðunum saman við, einu í einu og þeytið vel á milli.
Blandið öllum þurrefnunum saman við og hrærið þar til allt er blandað saman.
Skerið niður súkkulaðið, ég mæli með að hafa karamellurnar í heilu lagi, og blandið vandlega saman við.
Ég mæli eindreigið með að setja deigið síðan inní ísskáp í 1-2 sólarhringa, jafnvel nokkrir klukkutímar myndu gera helling fyrir bragðið af kökunni ykkar, en það má sleppa þessu skrefi.
Bræðið smjör á steypujárnspönnunni og húðið hana alla að innan með því.
Setjið deigið í pönnuna og dreifið jafnt úr því og setjið inní ofn á 180°c í 30-35 mínútur
Berið kökuna fram heita með ís eða rjóma

댓글