Ég hef lengi viljað gera súrdeigsbrauð með súkkulaði án þess þó að gera það að sætabrauði. Þessi uppskrift nær því. Brauðið er best með smjöri en bananar og epli eiga líka vel með. Ég er með rúgmjölssúr en fyrir þetta brauð bjó ég til hliðarsúr úr próteinríku hveiti
Hráefni
Próteinríkt hveiti 1000g
Vatn 900g
Súr 200g
Salt 20g
Dökkt súkkulaði 100g
Döðlur 100 g
Aðferð
Blandið saman hveiti og vatni og látið standa í 40 mínútur
Leggið döðlirnar í bleyti
Skerið súkkulaðið og döðlurnar og blandið saman við ásamt súrnum og salti
Látið standa í 30 mínútur og gerið strech and fold og endurtakið á hálftíma fresti þrisvar í viðbót
Látið hefast í 4 klst eða yfir nótt í ísskáp
Mótið brauð og setjið í skál og látið hefast í aðrar 4 klst
Setjið í 230°c heitan ofn í pott með. Fyrst í 25 mínútur með lokið á og svo 20 aðrar án loks
![](https://static.wixstatic.com/media/0f2b8d_bb7f34cbfa2d44e08fb35023f956a081~mv2.jpg/v1/fill/w_650,h_867,al_c,q_85,enc_auto/0f2b8d_bb7f34cbfa2d44e08fb35023f956a081~mv2.jpg)
Comments