Eins og hjá mörgum íslenskum fjölskyldum er hefð fyrir því í minni fjölskyldu að hittast á aðventunni og skera út laufabrauð. Kökurnar höfum við alltaf keypt úr bakaríi en síðan skorið og steikt sjálf. Ég ákvað þó að breyta út af vananum þetta árið þar sem mig langaði að gera tilraun með súrdeig. Kökurnar eru alveg eins og venjulegt laufabrauð nema að þær hafa þetta einstaka súrdeigsbragð. Amma Elísabetar var að spyrja mig um daginn hvort að það væri ekki hægt að gera súrdeigs soðið brauð og þá sagði ég henni að ég væri að fara að gera tilraun með laufabrauð sem yrði fyrsta tilraunin mín með djúpsteikt súrdeig. Þar sem sú tilraun heppnaðist vel megið þið gera ráð fyrir því að ég muni bjóða upp á uppskriftir af súrdeigs kleinum og soðnu brauði á nýju ári.
Hráefni
í ca 20 kökur
Mjólk 2 ½ dl
Smjör 5 tsk
Salt ½ tsk
Sykur 1 tsk
Hveiti 350g
Lifandi súr 100g
Aðferð
Hitið smjör og mjólk saman þar til smjörið er bráðið og blandan er ylvolg
Bætið restinni af hráefnunum útí og hnoðið þar til deigið verður slétt
Skiptið deiginu í 20 jafna hluta og fletjið hvern hluta í þunna köku og skerið í fallegan hring með disk og kleinuhjóli
Gerið fallegt munstur á kökurnar eins og gert er við venjulegt laufabrauð, gatið nett t.d með gafli og djúpsteikið svo þar til kökurnar verða fallega brúnar (örfáar sekúndur á hvorri hlið)
Venjulegar laufabrauðsuppskriftir gera ekki ráð fyrir neinni lyftingu þannig ég ákvað að gera það eins. Var bara með súr sem ég hafði gefið að borða 8klst áður.
Væri þó áhugavert að vita hvernig væri að láta það hefast
Er deigið ekkert látið hefast?