top of page
  • Writer's pictureBaldur Sverrisson

Sykurlausar bananasmákökur

Updated: Dec 6, 2023

Það er fátt jafn klassískt að henda þroskuðum bönunum í deig í stað sykurs. Þessar urðu til einfaldlega vegna þess að ég átti ekki lyftiduft og gat því ekki gert bananabrauð. Þær eru fljótlegar og hægt er að bæta útí grunnuppskriftina allskyns öðru bragðbætandi eins og hnetusmjöri (sem ég mæli eindregið með), það sakar líka ekki að smákökurnar eru vegan.


Hráefni


Grunnuppskrift

2 þroskaðir bananar

1 bolli (2,5 dL) haframjöl

1/2 bolli hveiti eða heilhveiti

1,5 tsk vanilludropar

1/2 tsk salt

1/2 dL jurtamjólk


Til að bæta útí:

1) 1 tsk kanill

1 dL rúsínur

2) 1 msk hnetusmjör

3) 6-8 döðlur, saxaðar


Aðferð


  1. Stappið banana og hrærið síðan restinni af hráefnunum saman við.

  2. Stillið ofninn á 180°c og blástur

  3. Deigið á að vera pínu klístrað en samt þykkt. Bætið jurtamjólk eftir þörfum. Mótið krónulaga smákökur á bökunarpappír. Kökurnar lyfta sér ekki svo fletjið þær út með fingrunum svo þær séu ekki of þykkar.

  4. Bakið þar til gullin brúnar eða í um það bil 10-15 mínútur






bottom of page