top of page
  • Writer's pictureBaldur Sverrisson

Vanillu Ostakaka með Oreo botni

Það má segja að nú sé hafin aðventa páska, búðir eru fullar af páskaeggjum og fólk er farið að ræða ferðalög um páskana. Annað sem á einstaklega vel við á þessum tíma eru ostakökur. Þessi vanillu ostakaka á því vel við á næstu vikum og jafnvel restina af árinu líka.


Hráefni

  • Oreo 16 kökur

  • Smjör 130g

  • Mascarpone ostur 200g

  • Rjómaostur 320g

  • Vanillustöng 1-2 stangir eftir stærð

  • Sykur 100g

  • Egg 3 stk

Aðferð

  1. Myljið kexið niður, bræðið smjörið og blandið saman

  2. Setjið bökunarpappír í botninn á hringlóttu smellumóti (25cm)

  3. Setjið kexblönduna í botninn og látið ná upp með hliðunum

  4. Skerið vanillustöngina langsum og takið fræin úr og blandið saman við restina af hráefnunum.

  5. Hellið blöndunni í formið

  6. Bakið í 160°C heitum ofni með blæstri í 45 mínútur

  7. Eftir 45 mínútur er kakan skilin eftir inní ofni, slökkt á honum og rifa opnuð og kakan geymd þar í lágmark klst og þaðan inní ísskáp þar til hún er borin fram

Berið fram með til dæmis ferskum berjum, karamellusósu og rjóma


bottom of page