top of page
  • Writer's pictureBaldur Sverrisson

Öðruvísi grænt pestó án hvítlauks

Þessi uppskrift varð til óvart. Ég var sendur útí búð að kaupa pestó sem innihéldi hvorki lauk né hvítlauk. Það þarf líklega ekki að segja flestum að það er nánast ómögulegt, enda er hvìtlaukur í flest öllum pestóum. Ég fann ekkert hvítlaukslaust pestó í þeim búðum sem ég fór í og lenti þar að auki á spjalli í búðinni. Það var því farið að styttast all verulega í kvöldmat og pestóið var stór hluti af máltíðinni. Ég dreif mig því og greip basilikuna og steinseljuna sem ég hef verið að rækta og henti í blandarann ásamt einhverjum hnetum sem mér leist vel á ásamt parmesanosti. Pestóið hlaut einróma góða dóma, því var ekkert annað að gera en að birta uppskriftina hér.


Hráefni

  • Basilika 25g

  • Steinselja 5g

  • Kasjúhnetur 20g

  • Sesamfræ 20g

  • Sólblómafræ 5g

  • Ólífuolía 150g

  • Parmesan 80-100g

Aðferð

  1. Rífið parmesanostin og blandið öllu saman í blandara

  2. Smakkið til með parmesan, olíu og pipar



bottom of page