top of page
  • Writer's pictureBaldur Sverrisson

Safaríkur sítrónu kjúklingur

Updated: Dec 6, 2023

Þetta er eins einfalt og það gerist, öllu hent í pott og eldað saman en af bragðinu að dæma mætti halda að þetta væri afek í matreiðslu.

Hráefni

  • Sítróna 1 stk

  • Hvítlaukur 1 ½ stk

  • Ferskt rósmarín 4 greinar

  • Timían 2 tsk

  • Kjúklingur 1 heill

  • Smjör 70 g

  • Bezt á kjúklinginn 1 tsk

  • Salt ½ tsk

  • Pipar ½ tsk

  • Rauðlaukur 2 stk

  • Gulætur 4 stórar

  • Annað grænmeti að vild

Aðferð

  1. Stillið ofninn eftir því hvort hægelda eigi kjúklinginn (90°) eða elda hraðar (200°) og stillið á blástur eða undir yfirhita.

  2. Byrjið á því að sneiða sítrónuna niður í þykkar sneiðar, ásamt 1 hvítlauk og grænmetinu

  3. Setjið hálfa sítrónu, eina grein af rósamarín og eina af timjan inní kjúklinginn

  4. kryddið kjúklinginn með salti, pipar og kjúklingakryddi

  5. Bræðið smjörið og kreistið 2 hvítlauksgeira útí og hellið yfir kjúklinginn, setjið restina af hvítlauknum í pottinn

  6. Setjið grænmetið úr skrefi 1 í pottinn ásamt restinni af rósamaríni og timjan og dreifið í kringum kjúklinginn og ofan á (sítrónusneiðar og kryddjurtir ofan á)

  7. Lokið pottinum og setjið inní ofn. Sé hitastigið 200° á ofninum er gott að miða við 45 mínútur en ef það á að hægelda hann er gott að miða við 4 klukkustundir. Við byrjuðum á því að hægelda hann en hækkuðum svo hitann eftir 2 klst sem flýtti fyrir. Það er gott að nota kjöthitamæli til að ganga úr skugga um að kjúklingurinn sé eldaður, þá er honum stungið inn að lærbeini og kjúklingurinn eldaður þar til hann hefur náð 75°c.

  • Gott trix er að kveikja á grillinu í ofninum á meðan kjúklingurinn er að klára að klifra síðustu gráðurnar og ná þannig stökku skinni


bottom of page