Þetta er réttur sem varð til þegar ég var í skiptinámi í Búlgaríu. Þar fékk ég alltof sjaldan að elda því það var einungis eitt eldhús sem var ætlað fyrir alla bygginguna þar sem bjuggu rúmlega 100 manns. Þegar tækifæri gafst var því eins gott að gera eitthvað gott sem hægt var að gera mikið af og eiga afganga, þess vegna mæli ég með að margfalda uppskriftina til að eiga nóg af afgöngum. Ástæðan fyrir að karrý er notað á tvo mismunandi vegu í réttinum er að þegar það er soðið er sætan dregin fram en þegar það er steikt kemur sterka bragðið meira fram, þannig ekki nota allt karrýið í einu til að spara ykkur vinnuna þið tapið á því í bragði.
Hráefni
100 g hrísgrjón að eigin vali
Engifer, ferskt
Karrý 1 ½ tsk
Hvítlaukur 1 rif
Kókosmjólk 500 ml
Rækjur 100 g
Grænmeti, ég vel það sem er ódýrast í það skiptið
Dæmi um val:
Paprika
Laukur
Vorlaukur
Eggaldin
Kúrbítur
Aðferð
Hrísgrjónin soðin eftir leiðbeiningum með hálfri teskeið af karrý og smá rifnu engiferi
Setjið olíu á pönnu og restina af karrýinu og brennið smá til að ná bragðinu fram
Setjið laukinn útí og steikið í ca 2 min
Bætið þá útí því grænmeti sem þarf hvað mestan eldunartíma og svo koll af kolli eftir þeim tíma sem það þarf
Þegar að grænmetið er alveg að vera til bætið þá kókosmjólkinni útí og látið malla í 5 mín til að blanda mismunandi bragðtegundum saman
Bætið soðnu hrísgrjónunu útí ásamt rækjunum og saltið eftir smekk

コメント