top of page
  • Writer's pictureBaldur Sverrisson

Rjómalöguð sveppasósa fyrir matarboðið

Mér finnst rjómalöguð sveppasósa alger snilld, það er þó því miður ekki mikil hefð fyrir að gera slíka sósu í hvorki minni fjölskyldu né fjölskyldu Elísabetar þannig ég hef þurft að spinna af fingrum fram. Þessi sósa er einmitt það bragð sem ég var með í huga þegar ég hófst handa við að búa til uppskriftina og myndi ég segja að hún passaði vel með hverju sem er og hafa dómar fjölskyldumeðlima verið einróma góðir.

Hráefni

  • Sveppir 250 g (mæli með að blanda saman tegundum)

  • Hvítlaukur 2 geirar

  • Skarlottulaukur 2 stk

  • Smjör 40 g

  • Salt og pipar

  • Hvítvín 1 1/2 dl

  • Kjötkraftur 1 stk

  • Vatn 1 dl

  • Rjómi 2 dl

  • Villisveppaostur 1/2 ostur

Aðferð

  1. Skerið sveppina í stórar sneiðar en laukinn og hvítlaukinn smátt

  2. Setjið olíu á pönnu og bætið sveppum, lauk, hvítlauk og smjöri útá

  3. Kryddið með salt og pipar og steikið á miðlungs hita í ca 10 mínútur

  4. Bætið síðan hvítvíninu útí og látið sjóða í smá stund

  5. Leysið kjötteningin upp í sjóðandi vatni og bætið útá pönnuna

  6. Þegar sósan hefur náð suðu aftur er rjómanum bætt útí ásamt því að villisveppaosturinn er rifinn útí

  7. Sósan er látin sjóða þar til hún nær þeirri þykkt sem þið kjósið, hægt er að þynna hana út með meira hvítvíni og rjóma eða mjólk.



bottom of page