top of page
  • Writer's pictureBaldur Sverrisson

Frábær fylling fyrir matarboðið

Updated: Dec 6, 2023

Þetta er uppskrift sem var hluti af minni útgáfu af Bandarískri hátíðarmáltíð. Einn af réttunum sem við gerðum var fylling sem nota má bæði til að setja í kalkún eða kjúkling en við settum þó aðeins í eldfast mót þar sem við vorum að prófa annað með kjúklinginn, en sú uppskrift kemur síðar. Brauðið og beikonið varð stökkt við að fara beint í ofninn, sem mér þykir betra. Fyllingin er frábær og vakti mikla lukku.Gott getur verið að notast við gamalt brauð sem er byrjað að þorna, við notuðum súrdeigsbrauð en notast má við það sem hverjum þykir best.


Hráefni

  • 300 gr beikonkurl

  • 1 sellerístöng

  • 4 skallottulaukar

  • ½ paprika

  • 2 bollar niðurskorið brauð

  • ½ mexíkóostur

  • 1 hvítlauksgeiri

  • 2 egg

Aðferð

  1. Steikið beikonkurlið á pönnu ásamt lauknum í ca 4 mínútur

  2. Bætið selleríinu og paprikunni útí og steikið áfram í aðrar 4

  3. Rífið niður ostinn og blandið saman við það sem er á pönnunni og setjið restina af hráefnunum útí

  4. Hellið öllu af pönnunni í eldfast mót og setjið inní ofn við 180°C í 20 mínútur



bottom of page