top of page

    Meinholl taco skál

    Writer: Baldur Sverrisson
    Baldur Sverrisson
    6 minutes ago
    2 min read

    Hollur matur þarf ekki að vera óspennandi, en það má ekki stytta sér leið. Fersk og góð hráefni eru lykilatriði og þetta tekur alveg sinn tíma. Ég lofa samt að það er þess virði. Ég hef nýlega verið að taka til í mataræðinu hjá mér og þetta er einn af réttunum sem orðið hefur til á þeim tíma og er hann eiginlega allrar vinnunnar virði.


    Það er mikið af hráefnum í þessari uppskrift, það er hægt að sleppa sumum hráefnum og skipta út fyrir önnur. Ég mun taka fram mínar uppástungur. Kóríander er líka hráefni sem finna má í öllum skrefum í þessari uppskrift, ég mæli með að nota mikið af því. Ef þið finnið sápubragð af kóríander vona ég ykkar vegna að það finnist fljótlega lækning á þessum genagalla.


    Hréfni

    • Kalkúnahakk (má vera annað hakk) - 1 pakning

    • Sæt kartafla

    • Kjúklingabaunir

    • Krydd að eigin vali (segi frá mínu vali í aðferð)

    Guacamole

    • Avókadó

    • Stór klípa af grófu salti

    • Hreint skyr 1 dl.

    • Jalapeno ca. msk.

    • Fjórðungur af papriku

    • Litlir tómatar 3 stk

    • Hálfur rauðlaukur

    • Hvítlaukur 2-4 geirar

    • Kóríander eftir smekk

    Pico de gallo

    • Litlir tómarar ca. 12 stk.

    • Púrrulaukur ca. 6 cm

    • Safi úr hálfu lime

    • Saltklípa

    • Kóríander eftir smekk


    Aðferð

    1. Penslaðu sætu kartöfluna með olíu og settu inn í 200°c heitan ofn í ca. klst. eða þar til hún verður mjúk í gegn

    2. Maukaðu avókadóið, ef avókadóið er hart þá hjálpar að setja grófa saltið saman við meðan þú ert að mauka það. Hakkaðu öll hráefnin smátt og bættu útí ásamt skyri. Leyfðu að standa í ísskáp þar til þú berð fram, því lengur því betra. Það er líka gott að bæta útí lime safa, lime börk og chilli

    3. Láttu safann renna af kjúklingabaununum (ef þið geymir hann getur þú meðal annars gert þessa súkkulaðimús). Settu þær í eldfast mót ásamt olíu og kryddum. Hér er gott að nota papriku- og chillikrydd ásamt túrmerik, hvítlauksdufti og laukdufti. Settu inn í ofninn með sætu karftöflunni í 20-30 mínútur eða þar til þær verða stökkar. Hrærðu reglulega.

    4. Skerðu tómatana og púrrulaukinn smátt, settu í skál með lime safa, smá salti og kóríander.

    5. Berðu fram með meira kóríander og njóttu



    Comments


    • Facebook
    bottom of page