Það verður síalgengara í dag að fólk sé með allskyns óþol eða fylgi ákveðnum mataræðum. Það getur verið krefjandi að þurfa að hugsa uppskriftirnar sínar uppá nýtt til að aðlaga þær þörfum allra en oft verður til eitthvað ótrúlega bragðgott sem allir geta notið. Þessi súkkulaðimús er dæmi um það, frábær og hentar þeim sem eru vegan, með mjólkuróþol og auðvitað hentar hún öllum sem elska súkkulaðimús. Þessi uppskrift varð t.d. til eitt kvöldið þegar mamma hafði beðið mig um að græja eftirrétt í matarboð. Fyrir þá sem ekki vita hvað aquafaba er, er það safinn sem kemur frá kjúklingabaunum í dós. Hljómar illa en það er svo sannarlega ekkert baunabragð af safanum og verður hann líkastur eggjahvítum í áferð þegar hann er þeyttur og er líka tilvalinn í marengsgerð. Þetta er því líka prýðisleið til að nýta safa sem annars færi til spillis þegar verið er að gera t.d hummus.
Hráefni
Dugar í 7 glös
Dökk súkkulaðimús neðsta lag
70% vegan súkkulaði
Kókosmjólk úr dós 1 bolli
Kókosolía
Salt klípa
Mjúkar döðlur 4 stk
Púðursykur 2 msk
Hinberjamús miðjulag
Aquafaba 1 dl
Frosin hinber 150g
Sjávarsalt ½ tsk
Ljós súkkulaðimús efsta lag
Hrísgrjónasúkkulaði 100g
Kókosmjólk sykurlaus 3 msk
Aquafaba 1 dl
Púðursykur 2 msk
Aðferð
Dökka músin
Bræðið súkkulaðið ásamt helmingnum af kókosmjólkinni yfir heitu vatnsbaði
Takið af hitanum og hrærið restinni af kókosmjólkinni saman við
Setjið blönduna ásamt restinni af hráefnunum í blandara og blandið saman
Skiptið jafn á milli þeirra íláta sem þið ætlið að hafa músina í eða setjið í eina stóra skál ef það á að bera það fram þannig.
Látið stífna inní ísskáp í lágmark 20 mínútur, helst lengur.
Hindberjamúsin
Þeytið aquafaba þar til blandan verður létt og loftmikil
Setjið hindberin í blandara og mixið
Bætið útí aquafaba vökvann á meðan hrærivélin er enn í gangi ásamt salti
Setjið ofaná dökku músina og inní ísskáp
Ljósa músin
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði ásamt kókosmjólk
Þeytið aquafaba ásamt púðursykri þar til blandan verður loftmikil
Blandið súkkulaðinu varlega saman við með sleif
Setjið ofaná hin lögin og leyfið að taka sig í lágmark hálftíma
Comments