top of page

    Djöflaterta með leynihráefni

    • Writer: Baldur Sverrisson
      Baldur Sverrisson
    • 1 day ago
    • 1 min read

    Leynihráefnið er skyr.

    Kakan inniheldur bæði smjör og olíu. Smjörið er fyrir bragð og olían er fyrir áferð. Þannig fæst bragðmikil og mjúk kaka.


    Hráefni

    Kaka

    • Smjör 160g

    • Mjólk 3 dl

    • Kakó 100g

    • Instant kaffi 2 tsk

    • Olía 2 dl

    • Hveiti 5 dl

    • Sykur 3 dl

    • Púðursykur 2 dl

    • Lyftiduft 1 tsk

    • Matarsódi 2 tsk

    • Salt 1 tsk

    • Vanilla 1 tsk

    • Skyr 200g

    • Egg 2 stk


    Krem

    • Smjör 250+50g

    • Suðusúkkulaði 150g

    • Instant kaffi 1 tsk

    • Eggjarauða

    • Vanilla 1 tsk

    • Flórsykur 300g

    • Kakó 40g

    • Skyr 30g


    Aðferð

    1. Setjið saman í pott smjör, mjólk, kakó og instant kaffi. Hitið að suðu og hrærið á meðan. Leyfið að kólna meðan þið undirbúið næstu skref

    2. Kveikið á ofninum á 180°C yfir og undir hita, setjið bökunarpappír í tvö form og smyrjið

    3. Blandið þurrefnunum í skál.

    4. Blandið öllu saman við kakóblönduna, fyrst olíu, svo þurrefnum og að lokum skyri og eggjum.

    5. Skiptið í tvö form og bakið í 35 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn út aftur eftir að hafa verið stungið í kökuna.

    6. Látið kökuna kólna meðan þið búið til kremið.

    Krem

    1. Bræðið saman 250g af smjöri og súkkulaði ásamt instant kaffi

    2. Blandið eggjarauðu útí meðan blandan er ennþá heit og hrærið vel

    3. Þeytið ásamt flórsykri og kakói

    4. Meðan þið þeytið bætið þá saman við 50g af köldu smjöri ásamt skyrinu


    Comments


    • Facebook
    bottom of page