Fáránlega djúsí brownies
- Baldur Sverrisson

- 24 hours ago
- 1 min read
Ég gerði það aftur. Ég fór aftur niður kanínuholu til að lesa mér til um áhrif ákveðinna hráefna í bakstri, og ég er ekki alveg viss um að ég sé kominn uppúr þessari holu. Í þetta skiptið vildi ég gera brownies sem væru fullkomin með ís. Því vildi ég hafa þau alveg fáránlega djúsi. Til að gera langa sögu stutta þá tókst það
Hráefni
Smjör 180g
Suðusúkkulaði 100g
Instant kaffi 1 tsk (má sleppa)
Púðursykur 2 dl
Flórsykur 1 dl
Egg 2 stk
Eggjarauður 2 stk
Vanilla 1 tsk
Brauðhveiti 100g
Salt 1 tsk
Rjómasúkkulaði 150g (má vera annað súkkulaði eftir smekk t.d. dökkt, hvítt eða suðu)
Kakó 40g
Olía 1dl
Síðan má setja annað saman við t.d. karamellu í botninn, Nutella á milli eða hnetusmjör ofaná eftir því hvað ykkur finnst gott.
Aðferð
Brúnið smjörið á pönnu
Saxið suðusúkkulaðinu og setjið í skál ásamt instant kaffinu og hellið smjörinu yfir meðan það er ennþá heitt. Hrærið þar til súkkulaðið bráðnar
Þeytið saman egg, eggjarauður, flórsykur og púðursykur þar til blandan verður létt og ljós
Saxið rjómasúkkulaðið (eða annað súkkulaði) og blandið í skál ásamt hveiti, kakói og salti
Blandið saman eggjablöndunni og brædda súkkulaðinu, síðan olínunni og síðast hveitiblöndunni
Setjið í form og inn í 180°c heitann ofn í 40 mínútur
Brownieið er gott bæði heitt og kalt og ég mæli með að bera það fram með ís




Comments