top of page
  • Writer's pictureBaldur Sverrisson

Heimagert Baileys

Updated: Jul 21, 2019

(Baileys)

Ég elska Baileys, elska samt aðalega að nota það í matseld, gera t.d. súkkulaðimús eða ís. Þetta er öðruvísi útgáfa en það sem þú kaupir í Ríkinu. Foreldrar Elísabetar féllu algerlega fyrir þessu og ég held að þau hafi boðið öllum gestum sínum uppá smakk meðan þetta entist. Þetta eru 2 mismunandi bragðtegundir en auðvitað má nota það súkkulaði sem er í uppáhaldi hjá hverjum og einum.


Hráefni

  • Rjómi 1 bolli

  • Súkkulaði að eigin vali 150-200g súkkulaði að eigin vali (ég hef t.d. notað mars, dökkt súkkulaði og dumle karamellur)

  • Sæt niðursoðin mjólk 1 dós

  • Viskí 1 2/3 bolli

  • Salt 1 tsk

Aðferð

  1. Bræðið saman rjóma og súkkulaði

  2. Setjið restina af hráefnunum í blandara og blandið vel

  3. Setjið rjóma- súkkulaðiblönduna síðan útí






bottom of page