top of page
  • Writer's pictureBaldur Sverrisson

Frábær glútenlaus súkkulaðikaka

Updated: Aug 23, 2019

Ég er alger sökker fyrir súkkulaðikökum, en þær verða að vera góðar. Ég vil frekar enga súkkulaðiköku en köku sem er bara allt í lagi, þannig ég eyði miklum tíma í undirbúning við að lesa uppskriftir áður en ég ákveð að gera köku. Eins og fyrir afmælið mitt um daginn þá ákvað ég að ég myndi búa til mína eigin uppskrift með öllu því sem mér finnst gott og ég ákvað það líka að kakan skyldi vera glútenlaus, þá sérstaklega svo að Elísabet gæti notið hennar með mér. Ég geglúrði gestina mína að tilraunadýrum og ákvað að segja þeim ekki að kakan væri glútenlaus og viti menn enginn var neinu nær. Kakan var, þó ég segi sjálfur frá, dásamleg og ein af þeim uppskriftum sem ég er allra stoltastur af. Smjörkremið er bara sú tegund sem mér hefur alltaf þótt best en Elísabet benti á að henni hefði fundist kakan best með dökku súkkulaði ganache, enda er hún minni sætindagrís. Það er eflaust hægt að sleppa kremi á botninum og skreyta með berjum eða öðru í staðinn en að mínu áliti er engin súkkulaðikaka alvöru súkkulaðikaka án krems. Ég læt því fylgja uppskriftina af smjörkreminu með.


Hráefni


Botninn

  • Sterkt kaffi ⅓ bolli

  • 70% súkkulaði 50g

  • Egg 3 stykki

  • Púðursykur 1 ¼ bolli

  • Vanilludropar 1tsk

  • Brætt smjör ¼ bolli

  • Grísk jógúrt ½ bolli

  • Salt 1 tsk

  • Möndlumjöl 200g

  • Kókoshveiti 65g

  • Kakó 60g

  • Lyftiduft (glútenlaust) 2 tsk

  • Matarsódi 1 tsk

Krem

  • Smjör við stofuhita 400g

  • Kakó 3 msk

  • Flórsykur 5 bollar

  • Mjólk ¼ bolli

  • vanilludropar 1 1/2 tsk

Aðferð

  1. Setjið súkkulaðið í skál og hellið heitu kaffinu yfir og látið standa þar til súkkulaðið bráðnar

  2. Þeytið saman eggin og púðursykurinn þar til blandan verður létt og ljós

  3. Hrærið saman þurrefnin í skál

  4. Blandið saman öllum hráefnum vandlega með sleif

  5. Skiptið kökunum jafn í 2 20-25cm form og setjið inní ofn við 180°c og á blástur í 40-50 mínútur

Kremið

  1. Á meðan kakan kólnar má græja kremið. Byrjið á því að hræra á smjörið

  2. Setjið síðan afgangin af hráefnunum útí og hrærið þar til kremið verður létt

  3. Smyrjið kreminu yfir annnan borninn þegar hann hefur kólnað og bætið hinum ofaná. Ljúkið kökunni með að klæða hana með smjörkremi.



bottom of page