top of page
Writer's pictureBaldur Sverrisson

Lambaprime í Asískri marineringu

Updated: Aug 2

Þergar ég var yngri voru mamma og pabbi stundum með sparilambakjöt í matinn bara fyrir sig, á meðan ég og systir mín fengum bara venjulegar grillsneiðar (vil samt taka fram að þau eru frábærir foreldrar). Þegar ég varð eldri og bragðlaukar mínir þóttu nógu þroskaðir fékk ég loks að smakka þetta fína sparilambakjöt. Það er oft þannig að þegar manni er lengi búið að langa í eitthvað veldur það vonbrigðum þegar maður loksins fær það, en þetta lamb gerði það alls ekki!


Hráefni


Fyrir 2


  • Lambaprime 400-450g

  • Hoisin sósa 100ml

  • Sojasósa 4 msk

  • Engifer ca 3cm bútur

  • Hvítlaukur 2 geirar

  • Chili eftir smekk


Meðlæti


Aðferð


  1. Skerið hvítlauk og chili smátt og raspið engiferið. Blandið öllu saman í skál og látið lambakjötið standa í marineringunni í 2-4 klst.

  2. Grillið lambið á funheitu grilli í 10 mínútur á hvorri hlið eða þar til medium rare.


Comments


bottom of page